Leiðbeiningar um umsóknir

Leiðbeiningar um útfyllingu umsókna í starfsmenntasjóði

Nú hefur Eining-Iðja opnað fyrir Mínar síður þar sem félagsmenn skrá sig inn með rafrænum skilríkjum eða Íslykli og geta m.a. sótt um rafrænt þá styrki sem í boði eru í sjúkrasjóði og í fræðslusjóði. Við hvetjum félagsmenn til að skrá sig inn til að prófa síðuna. Ef þið lendið í vandræðum með innskráninguna þá er starfsfólk félagsins boðið og búið að aðstoða ykkur. Félagsmenn, skoðið vel og lagið ef þarf bankaupplýsingar, símanúmer og netföng.

Hér fyrir neðan eru upplýsingar fyrir félagsmenn sem nýta sér ekki Mínar síður félagsins

Við útfyllingu á umsókn um starfsmenntastyrk er nauðsynlegt að fylla inn þær upplýsingar sem um er beðið. Félagið er aðili að þremur fræðslusjóðum sem taka saman tölulegar upplýsingar flokka náms og fleira.

  • Því þarf í upphafi að merkja við um hvaða nám/námskeið er sótt um styrk fyrir.
  • Merkja þarf í hvaða stéttarfélagi viðkomandi félagsmaður er þótt það liggi í augum uppi að umsækjandi sé félagsmaður sé í Einingu-Iðju þá er það ekki eins ljóst þegar umsóknin er komin inn í sjóðinn.
  • Fylla út vinnustað.
  • Persónulegar upplýsingar nafn, kennitala, heimili, sími og netfang - mikilvægt að fylla út síma og netfang, ef vantar gögn með umsókn þarf starfsmaður sjóðsins að geta haft samband.
  • Bankaupplýsingar þurfa að vera á umsókn - banki, höfuðbók og reikningsnúmer.
    • Greiðslur eru færðar rafrænt og sé villa í þessum upplýsingum eða gefið sé upp reikningsnúmer sem passar ekki við kennitölu umsækjanda, er ekki hægt að greiða inn á reikninginn. Í þeim tilfellum er greiðslu frestað þar til upplýsingar hafa borist.
  • Loks er beðið um upplýsingar um námið – hvenær það fer fram og hver stendur fyrir náminu/námskeiðinu.

Fylgigögn með umsókn:
Greiðslukvittanir fyrir útlögðum kostnaði – ef um ferðakostnað er að ræða þarf að fylgja kvittun fyrir honum.

Loks er umsókn dagsett og undirrituð.