Kosning trúnaðarmanns

  • Á öllum vinnustöðum þar sem starfa fleiri en 5 starfsmenn á að vera trúnaðarmaður starfandi.

  • Ef það eru fleiri en 50 starfsmenn má kjósa tvo trúnaðarmenn.

  • Ef vinnustaðurinn kýs ekki trúnaðarmann getur stéttarfélagið tilnefnt trúnaðarmann.

  • Trúnaðarmaður er ekki kosinn lengur en til tveggja ára í senn.

  • Ef það er ekki trúnaðarmaður á þínum vinnustað hafðu þá samband við skrifstofu Einingar-Iðju og við setjum upp kosningu til að kjósa trúnaðarmann.  Tryggvi varaformaður heldur utan um trúnaðarmannakerfi félagsins, tryggvi@ein.is