Í byrjun árs 2024 var tekið í notkun nýtt skipulag við kennslu á trúnaðarmannanámskeiðum félagsins. Námið er nú 12 sjálfstæðar einingar í stað fjögurra hluta þar sem nokkrar námseiningar voru kenndar saman. Sex námskeiðanna eru kenndir í fjarnámi en hin sex í staðnámi.
Staðnám verður nú tveir dagar í senn (í stað þriggja daga áður), en hvor dagur er eitt námskeið. Það þarf að skrá sig á báða dagana ef viðkomandi trúnaðarmaður ætlar að sitja bæði námskeiðin.
Litirnir á námskeiðunum eru einungis til að auðvelda trúnaðarmönnum að sjá hvaða námskeið þeir hafa nú þegar tekið.
----->
Á næstunni verða haldin eftirfarandi trúnaðarmannanámskeið.
Hlekkir við námskeiðin vísa inn á vef Félagsmálaskólans, kerfi skólans er þannig að ef þau þurfa að breyta í texta við námskeið þá býr kerfið til nýja slóð á það. Námskeiðin finnið þið á einfaldan hátt eftir dagsetningu eftir að skólinn setja námskeiðin inn á vefinn.
Skráning á námskeið fer fram á vef Félagsmálaskólans.
Félagsmálaskóli alþýðu sér um námskeiðin, en hann er starfræktur af Alþýðusambandi Íslands og BSRB. MFA, Menningar- og fræðslusamband alþýðu, fer með rekstur og málefni skólans. Hlutverk hans er að auka þekkingu talsmanna stéttarfélaga og efla þá í starfi til þess að þeir séu betur í stakk búnir að vinna að bættum lífskjörum launafólks.